Fara í efni

Styrkur til íþrótta- og tómstundastarfs fyrir börn

19.11.2020
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sérstakan íþrótta- og tómstundastyrk fyrir börn

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum. Er þetta hluti af aðgerðum stjórnvalda vegna Covid-19 þar sem markmiðið er að jafna tækifæri barna til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005–2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars–júlí 2020.

Styrkurinn er 45.000 kr fyrir hvert barn.

Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Hægt er að lesa nánar um styrkinn og jafnframt sækja um styrk með því að smella hér.