Styrktarhlaup fyrir félagið Einstök börn þann 1. maí nk. á Sauðárkróki
30.04.2025
Hlaupahópurinn 550 Rammvilltar stendur fyrir hinu árlega styrktarhlaupi fyrir félagið Einstök börn þann 1. maí nk. á Sauðárkróki.
Upphitun hefst við Sundlaug Sauðárkróks uppúr kl. 13:30 og hlaupið hefst kl. 14:00. Tvær leiðir eru í boði, 3 og 5 km, sem hægt er að stytta eða lengja að vild - hlaupandi, gangandi eða hjólandi. Hreyfibingóspjöld í boði fyrir börnin, drykkur við endamark og frítt í sund fyrir þátttakendur að hlaupi loknu. Opið er til kl. 17:00 í Sundlaug Sauðárkróks.