Fara í efni

Störf í búsetu fatlaðs fólks eru laus til umsóknar

21.07.2014

Störf í búsetu fatlaðs fólks eru laus til umsóknar

Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í búsetu fatlaðs fólks. Í starfinu felst að aðstoða fatlaða einstaklinga við allar athafnir daglegs lífs, persónulegar og félagslegar. Þjónustan er veitt inni á heimili hvers og eins og utan þess þegar við á hverju sinni.

Hæfniskröfur: Menntun sem nýtist í starfi og reynsla er kostur. Leitað er eftir einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á frumkvæði, gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri og æskilegt er að viðkomandi sé með bílpróf.

Um þrjú störf er að ræða frá 1. september 2014 og starfshlutföll eru á bilinu 60%-70%.
Unnið er í vaktavinnu; morgun-, kvöld- og helgarvaktir
.
Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 6. ágúst 2014

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (störf í boði) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi, steinunnr@skagafjordur.is, s: 455-6000. 

Sækja um