Stjórnendur í þjónustu við fatlað og eldra fólk efla samstarf og liðsheild á starfsdegi
Í síðustu viku komu saman stjórnendur í þjónustu við fatlað fólk og eldra fólk í Skagafirði og Húnavatnssýslum á árlegum starfsdegi. Meginmarkmið dagsins var að efla samstarf, styrkja liðsheild og skapa rými fyrir ígrundun í annasömu starfi.
Að þessu sinni var haldið í Húnaþing vestra, nánar tiltekið í Víðidal og hófst starfsdagurinn með útivist þar sem hópurinn naut samveru í náttúrunni. Það var byrjað á því að skoða Kolugljúfur og síðan gengið að Bergárfossi við Hrappsstaði. Um er að ræða árangursríka leið til að brjóta upp daglegt amstur, stuðla að jákvæðu andrúmslofti og efla tengsl milli fólks.
Starfsdagurinn var einstaklega vel heppnaður en það sköpuðust góðar umræður þar sem stjórnendur ræddu sameiginleg viðfangsefni, deildu reynslu og miðluðu lausnum sem geta nýst þvert á starfsstöðvar. Slík samvinna er lykilatriði í að tryggja samfellda og árangursríka þjónustu við notendur.