Fara í efni

Steinunn Þórisdóttir ráðin í nýja stöðu aðstoðarleikskólastjóra leikskólans Ársala

22.08.2022
Steinunn Þórisdóttir

Steinunn Þórisdóttir hefur verið ráðin í nýja stöðu aðstoðarleikskólastjóra leikskólans Ársala, en vegna stækkunar leikskólans og fjölgunar barna var ákveðið að auglýsa eftir öðrum aðstoðarleikskólastjóra. Bætist Steinunn því við stjórnunarteymi leikskólans, en Sólveig Arna Ingólfsdóttir er leikskólastjóri og Elín Berglind Guðmundsdóttir er nýlega tekin við sem aðstoðarleikskólastjóri.
Steinunn Þórisdóttir lauk B.ed. í grunnskólakennarafræðum árið 2003 og fékk leyfisbréf grunnskólakennara sama ár. Árið 2017 lauk Steinunn Dipl.Ed í menntavísindum með áherslu á stjórnun og forystu frá Háskólanum á Akureyri og fékk leyfisbréf leikskólakennara sama ár. Steinunn hefur starfað samfellt í leikskólum frá árinu 2008 og hóf störf sem deildarstjóri í leikskólanum Ársölum í fyrra. Einnig hefur Steinunn starfsreynslu úr grunnskóla og í félagsþjónustu.
Við bjóðum Steinunni Þórisdóttur hjartanlega velkomna í nýja stöðu aðstoðarleikskólastjóra Ársala og óskum henni velfarnaðar í sínum störfum.