Fara í efni

Starfsmaður óskast í þjónustu við fatlað fólk

19.02.2018

Starfsmaður óskast í þjónustu við fatlað fólk

Umsóknarfrestur framlengdur

 

Tímabil starfs: 20. mars 2018 – 31. maí 2018, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Starfsstöð: Fellstún 19.

Starfsheiti: Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II.

Starfshlutfall: 22% starfshlutfall.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður starfar á heimili fyrir fatlaða einstaklinga. Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Menntunarkröfur: Gerð er krafa um bílpróf. Önnur menntun er kostur.

Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Vaktavinna. Unnið aðra hverja helgi.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur framlengdur frestur er til og með 4. mars 2018

Nánari upplýsingar: Edda Haraldsdóttir, forstöðumaður, í síma: 453-6692, milli kl. 08:00-16:00, eða með tölvupósti; fellstun@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsókn ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar sem og konur eru hvattir til að sækja um.