Fara í efni

Starf yfirhafnarvarðar er laust til umsóknar

30.04.2015

 

Starf yfirhafnarvarðar er laust til umsóknar

Hafnarsjóður Skagafjarðar á og rekur tvær hafnir í Skagafirði, á Sauðárkróki og á Hofsósi.

Helstu verkefni yfirhafnarvarðar eru:

  • Daglegt eftirlit og stjórnun á hafnarsvæðum.
  • Daglegt eftirlit með skipum, móttaka þeirra, skráning og afgreiðsla.
  • Umsjón með hafnarmannvirkjum, hafnarvog og vigtun afla.
  • Stefnumótun og áætlanagerð.
  • Gæða- og þjónustustjórnun.
  • Markaðssetning á höfnum í samráði við stjórn.
  • Útskrift reikninga og skráning upplýsinga til gjaldtöku af skipum og vörum.
  • Samskipti við Fiskistofu og aðra hagsmunaaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • 1. stigs skipsstjórnarréttindi.
  • Reynsla af stjórnun og mannaforráðum.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Löggilding vigtarmanns er æskileg.
  • Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur.
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og ákveðni.
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum ásamt góðri þjónustulund.

Um 100% starf er að ræða og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2015

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (störf í boði) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Indriði Þór Einarsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, með því að senda fyrirspurn á netfangið indriði@skagafjordur.is eða í síma 455-6205 / 692-3880.