Fara í efni

Talning á sorptunnum í þéttbýli í vikunni

02.10.2023

Á næstu dögum mun fara fram talning á sorptunnum í þéttbýli Skagafjarðar og má búast við heimsókn vegna þessa. Sveitarfélagið hefur fengið Björgunarsveitina Skagfirðingasveit til liðs við sig við að telja tunnur á Sauðárkróki á þriðjudag (3. október) og starfsmenn á vegum sveitarfélagsins munu sjá um talninguna á Hofsósi, Hólum og í Varmahlíð seinna í vikunni. Engum þarf því að bregða þó það sjáist til björgunarsveitarfólks og starfsfólks á vegum sveitarfélagsins við sorptunnur heimilisins.