Fara í efni

Sorpflokkun í Hegranesi

13.11.2014
Flokka ehf

Tilraunaverkefni á flokkun sorps í dreifbýli hefur verið í gangi frá ágúst til október í Hegranesinu. Á hverjum bæ er 660 lítra kar undir almennt sorp og 240 lítra tunna undir flokkaðan úrgang og eru ílátin tæmd tvisvar í mánuði. Ómar Kjartansson frá Ó.K gámaþjónustunni mætti á fund umhverfis- og samgöngunefndar í morgun og kom fram að verkefnið hafi gengið vel og að flestir íbúar séu ánægðir með þjónustuna. Ákveðið var á fundinum að halda verkefninu áfram út árið og að stefna að flokkun sorps í dreifbýli í náinni famtíð.

Við látum hér fylgja með bæklinginn góða um flokkun sorps til upprifjunar !