Fara í efni

Sóknaráætlun Norðurlands vestra

02.06.2015

Opinn fundur verður í Miðgarði miðvikudaginn 10. júní kl 17:00 um sóknaráætlun Norðurlands vestra. Þann 10. febrúar síðastliðinn var skrifað undir samning milli Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og ríkisins um Sóknaráætlun 2015-2019. Markmið samningsins er að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni landshlutans og landsins alls.
Samkvæmt samningnum skal marka stefnu landshlutans í menningarmálum, nýsköpun og atvinnuþróun, uppbyggingu mannauðs og lýðfræðilegri þróun svæðsins.

Á opna fundinum í Menningarhúsinu Miðgarði verður fjallað um stöðu Norðurlands vestra í þessum málaflokkum og síðan unnið í hópum. Fundurinn er öllum opinn og í fréttatilkynningu eru íbúar hvattir til að mæta og taka þátt í að móta stefnu og áherslur landshlutans.

Á heimasíðu SSNV er að finna Samning um sóknaráætlun Norðurlands vestra 2015-2019.