Fara í efni

Snjómokstur í Skagafirði í vetur

13.01.2015

Fyrirkomulag snjómoksturs í Skagafirði er þannig háttað að Vegagerðin sér alfarið um að moka þjóðveg 1, Sauðárkróksbraut,  Siglufjarðarveg frá Sauðárkróksbraut, Hólaveg frá Siglufjarðarvegi að Hólum og Þverárfjallsveg alla daga. Siglufjarðarvegur frá þjóðvegi 1 að Sauðárkróksbraut er mokaður sunnudaga, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga er Skagafjarðarvegur frá þjóðvegi 1 að Héraðsdalsvegi mokaður.

Vegagerðin aðhefst ekkert í snjómokstri á öðrum vegum fyrr en samþykki sveitarfélagsins liggur fyrir. Íbúum sveitarfélagsins er bent á að hafa samband við fulltrúa sveitarfélagsins á sínu svæði sem hafa umboð til að panta snjómokstur og greiðir sveitarfélagið tvisvar á vetri fyrir mokstur á heimreiðum. Nánar