Fara í efni

Snjómokstur á vegum í Sveitarfélaginu Skagafirði

15.11.2016
Fallegur vetrardagur í Skagafirði

Eftir eindæma góða veðurblíðu það sem af er vetri er spáð norðan stórhríð seinnipart vikunnar. Við viljum því benda fólki á hvernig snjómokstri er háttað í héraðinu.

Vegagerðin sér alfarið um mokstur á þjóðvegi 1, Sauðárkróksbraut, Þverárfjallsvegi, Siglufjarðarvegi frá Sauðárkróksbraut og frá Siglufjarðarvegi heim í Hóla sem eru mokaðir daglega.

Vegagerðin sér einnig alfarið um mokstur á Siglufjarðarvegi frá þjóðvegi 1 að Sauðárkróksbraut sem er mokaður sunnudaga, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga og Skagafjarðarvegi frá þjóðvegi 1 að Héraðsdalsvegi sem er mokaður mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.

Vegagerðin aðhefst ekkert í snjómokstri á öðrum vegum nema með samþykki sveitarfélagsins en auglýsingu um sjómoksturinn má nálgast hér á heimasíðunni  okkar. Íbúum er bent á að hafa samband við tengiliði en þeir hafa umboð til að panta snjómokstur.

Sveitarfélagið greiðir fyrir tvo mokstra á heimreiðum á ári.