Fara í efni

Uppbygging fjölskyldugarðs á Sauðárkróki

31.05.2022

Í síðustu viku var skrifað undir viljayfirlýsingu við Kiwanisklúbbinn Freyju um uppbyggingu fjölskyldugarðs á Sauðárkróki. Markmið fjölskyldugarðsins er að stuðla að ánægjulegum samverustundum barna og foreldra og um leið að efla útiveru og hreyfingu í anda heilsueflandi samfélags.

Sveitarfélagið mun sjá um hönnun og afmörkun svæðisins í samstarfi við klúbbinn en þar er gert ráð fyrir leiktækjum og annarri aðstöðu fyrir alla aldurshópa.

Sveitarfélagið færir Freyjunum bestu þakkir fyrir framtakið með von um gott samstarf í framhaldinu um uppbyggingu fjölskyldugarðsins.