Skráning í Vinnuskólann stendur yfir
Við vekjum athygli á því skráningar í Vinnuskóla Skagafjarðar fyrir sumarið 2025 eru í fullum gangi. Vinnuskólinn verður starfandi frá þriðjudeginum 10. júní til föstudagsins 8. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Leitast er við að veita öllum 13 til 16 ára unglingum búsettum í Skagafirði aðgang í skólann. Árgangarnir sem í hlut eiga eru fæddir á árunum 2012, 2011, 2010 og 2009. Vinnutíminn er 40 klukkustundir hjá yngsta árgangi, 120 klukkustundir fyrir ungmenni fædd árið 2010, 180 klukkustundir fyrir ungmenni fædd árið 2009 og 240 klukkustundir hjá elsta hópnum. Mæting er kl. 08:00 fyrsta vinnudag í nýrri bækistöð vinnuskólans sem verður í vallarhúsinu á íþróttavellinum á Sauðárkróki.
Skráning fer fram á upplýsingarsíðu Vinnuskólans og þar má jafnframt finna allar helstu upplýsingar um skólann.