Skráning í Vinnuskólann fyrir sumarið 2026 er hafin
Vakin er athygli á því að skráning í Vinnuskóla Skagafjarðar fyrir sumarið 2026 er nú hafin. Leitast er við að veita öllum 13 til 16 ára unglingum búsettum í Skagafirði aðgang í skólann, en árgangarnir sem í hlut eiga í ár eru fæddir á árunum 2013, 2012, 2011 og 2010.
Vinnutíminn er 40 klukkustundir hjá yngsta árgangi, 120 klukkustundir fyrir ungmenni fædd árið 2012, 180 klukkustundir fyrir ungmenni fædd árið 2011 og 240 klukkustundir hjá elsta hópnum.
Fyrsti dagur Vinnuskólans 2026 fyrir 8.–10. bekk er 8. júní en 6. júlí fyrir 7. bekk. Mæting er kl. 08:00 í nýrri bækistöð vinnuskólans, sem verður í vallarhúsinu á íþróttavellinum á Sauðárkróki.
Skráning fer fram á upplýsingarsíðu Vinnuskólans og þar má jafnframt finna allar helstu upplýsingar um skólann.