Fara í efni

Skráning hafin í vinnuskólann

08.05.2015

Skráning er hafin í Vinnuskóla Sveitarfélagsins Skagafjarðar og verður opið fyrir skráningu til og með 22. maí.

Skráning fer fram rafrænt og er skráningu að finna á heimasíðu sveitarfélagsins og á Facebookarsíðu Húss frítímans ( 8.-10. bekkur)

Þeir árgangar sem geta skráð sig eru: ´02, ´01, ´00 og ´99.

Fyrirkomulag vinnunnar er eftirfarandi:

 

Daglegur vinnutími er 8.00 til 12.00 og 13.00 til 15.30 mán – fim,  en 8.00 til 12.00 á föstudögum.

Laun eru borguð út á 2 vikna fresti eða: 16. júní, 1. júlí, 15. júlí, 29. júlí og 12. ágúst.   

Vinna hefst mánudaginn 8. júní.

Nánari upplýsingar veitir Þorvaldur í síma 660-4639 eða á valdi@skagafjordur.is