Fara í efni

Skráning hafin í Sumar-Tím

28.05.2021

Skráning er hafin í SUMAR – TÍM 2021. 

Sumar - TÍM stendur fyrir tómstundir, íþróttir og menningu. Fjölbreytt starf er í boði, má þar nefna fótbolta, körfubolta, golf, siglingar, kofabyggð, hjólreiðar og föndur. Börn þurfa ekki að hafa fasta búsetu í Skagafirði til þess að geta sótt Sumar - TÍM.  

Sumar - TÍM er fyrir börn fædd 2014 – 2008 og byrjar það 7. júní og stendur til 13. ágúst. Höfuðstöð okkar er í Árskóla B – álmu.  

Boðið verður upp á að börn í 1. - 4. bekk geti verið í samfelldu starfi frá kl. 08:00 – 16:00 (Mán-fim og 8 -12 á fös.) og þá er boðið upp á gæslu í hádeginu með þeim skilyrðum að börnin hafi með sér nesti að heiman og þann útbúnað sem til þarf yfir daginn.  

Fyrirkomulag gæslunnar verður þannig að hún byrjar kl. 12:00 þegar flest öll námskeið eru búin og stendur til kl. 13:00 þegar næstu námskeið byrja. Þar geta krakkarnir borðað nestið sitt og síðan leikið sér aðeins áður en að næsta námskeið byrjar.  

Skráningar fara fram í gegnum vefverslun NÓRA eins og í fyrra. Opnað hefur verið fyrir skráningu. Ekki þarf að skrá barn á námskeið fyrir allt sumarið í upphafi. Skráning fyrir hvert og eitt námskeið lýkur alltaf fimmtudeginum í vikunni áður en að námskeiðin byrja.  

Námskeiðin eru oft fyrir ákveðna bekki og er þá miðað við þann bekk sem barnið var að útskrifast úr. Sem dæmi er 1. bekkur, árgangur 2014. Ef ekki er tekið fram bekkur þá eru námskeiðin fyrir 1. – 7. bekk.  

Börn sem eru fædd 2015 og eru að ljúka við leikskólastig verður boðið að taka þátt í Sumar - TÍM frá 12. júlí - 13. ágúst. 

Hafi barnið þitt einhverjar sérþarfir væri gott að láta starfsfólk Sumar - TÍM vita. Við erum einnig dugleg að taka myndir af starfinu og setja inn á Facebook síðuna okkar. Við biðjum börnin alltaf um leyfi en viljum einnig ykkar leyfi. Ef þið eruð mótfallin því að myndir af barninu ykkar fari inn á síðuna, hafið þá samband. 

Fylgið Sumar - TÍM á Facebook. Þar verðum við dugleg að setja inn upplýsingar um starfið. Ef það eru einhverjar spurningar þá ekki hika við að hafa samband við okkur á sumartim@skagafjordur.is

 

 

Hlökkum til sumarsins með ykkur! 

Starfsfólk Sumar-TÍM 

 

Vefverslun NÓRA

Facebook síða Sumar-TÍM