Fara í efni

Skráning hafin í Sumar TÍM

27.05.2016
Sumar TÍM - leikjanámskeið

Nú er skráning hafin í Sumar TÍM og stendur hún til fimmtudagsins 2. júní. Fjölbreytt námskeið verða í boði þetta sumarið eins og síðastliðin ár.

Umgmennafélagið Hjalti verður með leikjanámskeið fyrir börnin á Hólum, Hofsósi og nágrenni í samstarfi við Sigurlaugu Rún Brynleifsdóttur og í boði verður akstur frá Hofsósi. Námskeiðin verða tímabilið frá 2. - 24. júní.

Á Sauðárkróki verða mörg námskeið og æfingar í boði eða tæplega 30 talsins og hafa einhverjar breytingar orðið frá síðasta sumri. Eldri hópnum, 4. - 6. bekk, gefst kostur á nokkrum nýjum og skapandi námskeiðum s.s. stuttmyndanámskeiði, textílnámskeiði, tískuteikningu, hönnun og endurvinnslu o.fl.

Sumar TÍM hefst á Sauðárkróki 6. júní næstkomandi og verða höfuðstöðvarnar í Árskóla. Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 455 6109 í Húsi frítímans, 660 4633 Vala Hrönn og netfangið sumartim@skagafjordur.is