Fara í efni

Skólastarfið í Birkilundi fer afar vel af stað í nýju húsnæði

24.04.2026

Skólastarf í Leikskólanum Birkilundi hefur farið afar vel af stað í nýju og glæsilegu húsnæði. Börn og starfsfólk hafa aðlagast aðstæðum vel og ríkir mikil ánægja með umhverfi og starfshætti leikskólans.

Börnum í leikskólanum hefur fjölgað samhliða fjölgun starfsfólks og gaman er að segja frá því að í febrúar var mikilvægum áfanga náð þegar fjórða deild leikskólans var opnuð. Unnið er áfram að því að fullmanna leikskólann svo hægt verði að nýta öll þau leikskólapláss sem í boði eru.

Húsnæðið er vel hannað með þarfir barna og starfsfólks í huga. Hljóðvist er mjög góð, sem skiptir miklu máli fyrir vellíðan, einbeitingu og gæði starfsins. Hver deild samanstendur af þremur rýmum sem hægt er að aðlaga eftir þörfum og loka af, sem skapar fjölbreytta möguleika í leik og starfi.

Leikskólinn býr jafnframt yfir stóru og fjölbreyttu útileiksvæði og ríkir mikil tilhlökkun meðal barna og starfsfólks eftir því að hægt verði að taka allt svæðið í notkun. Útileiksvæðið tengist skógi og náttúrulegu umhverfi sem býður upp á einstök tækifæri til könnunar, hreyfingar og frjáls leiks – auk þess að styðja við útikennslu og tengingu barna við náttúruna.

 Leikskólinn hefur opnað Instagram-síðu (@birkilundur_leikskoli) þar sem hægt er að fylgjast með starfinu og hvetur sveitarfélagið íbúa til þess að fylgja síðunni.