Fara í efni

Skólaslit í Varmahlíð

28.05.2015

Þó vorið sé ekki alveg eins og flestir vilji hafa það og blíðan láti bíða eftir sér eru skólarnir að ljúka vetrarstarfinu hver á fætur öðrum. Á morgun föstudag eru skólaslit í Varmahlíðarskóla og hefjast þau kl 20. Að athöfn lokinni verður boðið upp á kaffi og meðlæti og starfsfólk Varmahlíðarskóla býður nemendur, foreldra, vini og velunnara skólans velkomna.