Fara í efni

Skólasetning grunnskólanna

21.08.2018
Árskóli á Sauðárkróki

Nú er sumri tekið að halla og komið að skólasetningu grunnskólanna sem boðar komu haustsins en skólarnir verða settir í þessari viku.

Grunnskólinn austan Vatna verður settur miðvikudaginn 22. ágúst kl 10 á Hólum og kl 13 á Hofsósi. Skólasetning Árskóla verður í íþróttahúsinu á Sauðárkróki fimmtudaginn 23. ágúst kl 11 hjá yngsta stigi, kl 11:30 hjá miðstigi og kl 12 hjá elsta stigi. Varmahlíðarskóli verður settur á fimmtudaginn kl 14.