Fara í efni

Skólaakstur á Sauðárkróki

31.08.2013

Skólarútan mun aka í vetur og fara eina ferð á morgnana og aðra ferð við skólalok yngstu nemendanna
Tímasetningar og akstursleið er auglýst nánar á heimasíðu Árskóla.

Ferðir með skólarútunni verða gjaldfrjálsar og eru nemendur eindregið hvattir til þess að nota rútuna eins og kostur er.

Leggjumst öll á eitt að skapa góða og slysalausa umferðarmenningu við skólann.  Gott væri að bílstjórar á leið til vinnu að morgni veldu sér akstursleið sem sneiddi framhjá gangbrautinni við Árskóla.