Fara í efni

Skólaakstur á Sauðárkróki hefst að nýju

24.10.2019

Ákveðið hefur verið að skólaakstur hefjist á nýjan leik næstkomandi mánudag 28. október. Ákvörðun um skólaakstur felur í sér þá breytingu að daglegur akstur skólarútunnar verður einugis yfir hörðustu vetrarmánuðina, frá miðjum október og fram í apríl.

Akstursleiðir verða óbreyttar frá því sem verið hefur:

Ekið verður frá Háuhlíð alla daga kl. 7:50

Ekið er frá Árskóla alla daga kl. 13:20 og 14:00

Að auki er ekið frá Árskóla miðvikudaga kl. 14:40