Fara í efni

Skipulagsmál - Sauðárkrókur athafnarsvæði AT-403: Vinnslutillaga

19.02.2025

Sauðárkrókur athafnarsvæði AT-403 - Tillaga á vinnslustigi (mál nr. 808/2024 í Skipulagsgáttinni)

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 35. fundi sínum þann 12. febrúar 2025 að auglýsa tillögu á vinnslustigi fyrir „Sauðárkrók athafnarsvæði AT-403“ í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.

Tillagan er sett fram sem uppdrættir og skýringaruppdrætti dags. 05.02.2025 unnin af Stoð ehf. verkfræðistofu.

Tillagan á vinnslustigi er auglýst frá 19. febrúar 2025 til og með 5. mars 2025. Hægt er að skoða tillöguna í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 808/2024. Tillagan er jafnframt aðgengileg til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá kl. 10-12 og kl. 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi vinnslutillöguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is í síðasta lagi 5. mars 2025. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is.

Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

 

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar

Vinnslutillaga - Sauðárkrókur athafnarsvæði AT-403