Fara í efni

Skipulagsauglýsingar I Verknámshús FNV, Laufblaðið á Sauðárkróki og Furulundur í Varmahlíð

21.10.2026

Skagfirðingabraut 26, Sauðárkróki, deiliskipulagstillaga

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 54. fundi sínum þann 14. október 2026 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir ”Skagfirðingabraut 26, Sauðárkróki” í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagstillagan er sett fram á uppdrætti ásamt greinargerð nr. DS-01, verknúmer 56293200, dags. 21.09.2026, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni. Skipulagsuppdrátturinn sýnir fyrirhugaða uppbyggingu skólasvæðis Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra (FNV) innan skipulagssvæðisins, aðkomu inn á lóðina, byggingarreiti, bílastæði og helstu skilmála.

Deiliskipulagstillagan er auglýst frá 21. október 2026 til og með 4. desember 2026. Hægt er að skoða deiliskipulagstillöguna í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 1413/2025. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is. Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 1413/2025 í síðasta lagi 20.nóvember 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is. Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði, deiliskipulagstillaga

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 54. fundi sínum þann 14. október 2026 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir ”Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði” í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagstillagan er sett fram á uppdráttum nr. DS01 og DS02 ásamt greinargerð dags. 01.10.2026, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni, Árna Ragnarssyni og Atla Gunnari Arnórssyni.

Uppdrátturinn sýnir afmörkun lóða, byggingarreiti, götulínur, gönguleiðir og helstu byggingarskilmála. Skýringaruppdráttur nr. DS-02 sýnir lóðamörk og núverandi byggingar, skilmálatöflu og hugmyndafræðin fyrir opna svæðið sem unnin er af Hildi Hartmannsdóttur.

Deiliskipulagstillagan er auglýst frá 21. október 2026 til og með 4. desember 2026. Hægt er að skoða deiliskipulagstillöguna í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 3/2026. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is. Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 3/2026 í síðasta lagi 20.nóvember 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is. Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

Furulundur 3-7, Varmahlíð, vinnslutillaga deiliskipulags og vinnslutillaga aðalskipulagsbreytingar

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 54. fundi sínum þann 14. október 2026 að auglýsa vinnslutillögur deiliskipulags og aðalskipulagsbreytingar fyrir ”Furulundur 3-7 í Varmahlíð, Skagafirði” í samræmi við 40. gr. og 30. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Vinnslutillögurnar eru settar fram á uppdráttum ásamt greinargerð nr. DS01 og AS01 dags. 01.10.2026, unnir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni og Árna Ragnarssyni.

Helsta viðfangsefni við breytingu á aðalskipulagi er að marka stefnu um landnotkun þar sem fyrir liggur að landnotkun síðustu ára mun breytast, þar sem leikskólinn hefur verið fluttur frá götunni Furulundi. Aðalskipulagsbreyting gengur út á að svæði fyrir samfélagsþjónustu verður íbúðarsvæði annars vegar og miðsvæði hins vegar. Deiliskipulagsuppdráttur nr. DS-01 sýnir lóðamörk, aðkomu að lóðum og byggingarreiti ásamt helstu byggingarskilmálum.

Vinnslutillögurnar eru auglýstar frá 21. október 2026 til og með 4. desember 2026. Hægt er að skoða vinnslutillögurnar í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerunum 483/2026 og 484/2026. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is. Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi vinnslutillögurnar. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerunum 483/2026 og 484/2026 í síðasta lagi 8.nóvember 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is. Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.