Skipulagsauglýsing: Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 50. fundi sínum þann 3. júní 2026 að auglýsa deiliskipulagsvinnslutillögu fyrir ”Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði“ í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagstillagan á vinnslustigi er sýnd á tveimur uppdráttum nr. DS01 og DS02, dags. 21.05.2026, unnir á Stoð ehf. verkfræðistofu. Á uppdráttunum er sýnd núverandi byggð og tillaga að hámarksnýtingarhlutfalli fyrir hverja lóð fyrir sig, sett upp í skýringartöflu til að hægt sé að glöggva sig á hversu marga fermetra til viðbótar væri mögulegt að byggja á hverri lóð. Hugmyndavinna Hildar Hartmannsdóttur er sýnd fyrir óbyggilegt opið svæði sem liggur milli Gilstúns og Brekkutúns til suðurs, þar sem megin þemun eru sýnd ásamt skýringarmyndum fyrir:
- Akurinn, matjurta- og blómaræktun
- Votengi, ofanvatnsrásir og söfunarlautir fyrir ofanvatn
- Fjörsalir, leik- æfinga og upplifunarrými fyrir allan aldur
- Hólavellir, sléttur grasflötur umlukinn gróðri
Gert er ráð fyrir bílastæði útfrá Sæmundarhlíðinni til að auka ekki umferð bíla inn götur Túnahverfisins inn að opna svæðinu. Einnig er settur upp svokallaður hreyfiás í gegnum miðju skipulagssvæðisins (sem liggur vestur - austur) sem er ætlaður sem grænn tengiás um hverfið endilangt og skapa þannig grundvöll fyrir örugga tengingu um svæðið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Tillagan stillir upp möguleika á nýjum parhúsum á svæðinu, Gilstúni 21-23, Eyrartúni 11-13, 14-16 og 15-17.
Deiliskipulagsvinnslutillagan er auglýst frá 10. júní 2026 til og með 1. júlí 2026. Hægt er að skoða skipulagstillöguna í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 3/2026. Lýsingin mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi skipulagslýsinguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir máli númer 3/2026 í síðasta lagi 1. júlí 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is. Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.
Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar
- Sjá viðhengi hér.