Skipulagsauglýsing I Syðri-Hofdalir, í Hofsstaðaplássi
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 52. fundi sínum þann 26. ágúst 2026 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir "Syðri-Hofdalir, í Hofsstaðaplássi " skv. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagslýsingin, útg. 1.0, dags. 05.08.26, gerir grein fyrir fyrirhuguðu skipulagsverkefni, helstu forsendum og viðfangsefnum.
Markmið deiliskipulagsins eru að fjalla um landnotkun á Syðri-Hofdölum, skilgreina lóðir, skilgreina byggingarreiti og setja skipulags- og byggingarskilmála í samræmi við stefnu sveitarfélagsins og áform landeigenda. Í meðfylgjandi skipulagslýsingu er sýnd afmörkun skipulagssvæðis sem er 154,9 ha að stærð. Skipulagslýsing er unnin hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Skipulagslýsingin er auglýst frá 2. september til og með 24. september 2026. Hægt er að skoða hana í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 1014/2026. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is
Með skipulagslýsingu þessari er íbúum og öðrum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að senda inn rafrænar ábendingar og athugasemdir sem snúa að málefnum deiliskipulagsins og komandi skipulagsvinnu í gegnum vef skipulagsgáttar www.skipulagsgatt.is mál nr. 1014/2026 í síðasta lagi 24. september 2026. Einnig er hægt að skila inn skriflegum umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is
Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar