Skipulagsauglýsing: Flæðigerði, lóðir til úthlutunar
Flæðigerði 14, 16 og 27 – lóðir fyrir hesthús
Fyrir liggur staðfest deiliskipulag fyrir íþróttasvæði hestamanna við Flæðigerði í Skagafirði, samþykkt 25.05.2022, með breytingu samþ. 31.07.2023. Skipulagsnefnd Skagafjarðar auglýsir til úthlutunar lóðir nr. 14, 16 og 27 við Flæðigerði í samræmi við reglur sveitarfélagsins um úthlutun byggingarlóða, dags. 14. september 2022. Flæðigerði 14 og 16 eru 810 m² að stærð með hámarks byggingarmagn 267,3 m². Flæðigerði 27 er 464 m² að stærð með hámarks byggingarmagn 144 m². Varðandi frekari skilmála er vísað í deiliskipulag.
Lóðirnar eru auglýstar frá og með 10. júní 2026 til og með 24. júní 2026.
Frekari upplýsingar er að finna á vef Skagafjarðar, www.skagafjordur.is, undir flipanum Framkvæmdir -> Lausar lóðir. Sótt er um lóðir á kortasjá sveitarfélagsins, www.map.is/skagafjordur, undir Fasteignir --> Lausar lóðir. Umsóknir skulu vera í samræmi við úthlutunarreglur Skagafjarðar og frestur lóðarhafa til framkvæmda er skv. 10. gr. úthlutunarreglna. Hægt er að nálgast úthlutunarreglur á vef sveitarfélagsins, undir Reglur og samþykktir, Húsnæðis- og fasteignamál.
Einungis er hægt að sækja um eina lóð og aðra tilgreinda lóð til vara. Dregið verður úr umsóknum verði fleiri en einn umsækjandi um lóð.
Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar