Skipulag um viðhald og umhirðu hafið á Hólastað
20.05.2026
Starfsmenn veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar hafa hafist handa við að skipuleggja viðhald og umhirðu á Hólastað, þ.e. þeirra svæða sem munu heyra undir sveitarfélagið í kjölfar nýs samkomulags sveitarfélagsins og íslenska ríkisins um innviði og uppbyggingu á svæðinu.
Á næstu vikum stendur til að hefja lagfæringar á klæðningu gatna og jafnframt er skipulagning sláttar og almennrar umhirðu í fullum gangi. Þá hefst undirbúningur og skipulagning fráveituframkvæmda í haust 2026.
Skagafjörður mun vinna náið með staðarumsjónarmanni, umsjónarmanni Skólabús og öðrum hagsmunaaðilum sem að svæðinu koma til að tryggja sem bestan árangur í þessu mikilvæga verkefni.