Skipan í kjördeildir í Skagafirði
Við kosningar til Alþingis sem fram fara laugardaginn 30. nóvember nk. er skipan í kjördeildir sem hér segir:
Kjördeild í Bóknámshúsi FNV, Sauðárkróki
Þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs-, Rípur- og Skefilsstaðahreppa. Kjörfundur hefst kl. 09:00.
Kjördeild í Höfðaborg, Hofsósi
Þar kjósa íbúar fyrrum Hofs-, Fljóta-, Hóla- og Viðvíkurhreppa. Kjörfundur hefst kl. 10:00.
Kjördeild í Varmahlíðarskóla
Þar kjósa íbúar fyrrum Staðar-, Seylu-, Akra- og Lýtingsstaðahreppa. Kjörfundur hefst kl. 10:00.
Einstaklingar geta flett upp hvar þeir eigi að kjósa á vef Þjóðskrár Íslands.
Kjörfundi má slíta átta klukkustundum eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði.
Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.
Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00 en þeir kjósendur sem hafa gefið sig fram þann tíma eiga þó rétt á að greiða atkvæði.
Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá Sýslumanni Norðurlands vestra á Sauðárkróki frá kl. 09:00 - 15:00 virka daga frá 7. nóvember.
Þess má einnig geta að á kosningadaginn verður Þjóðskrá Íslands með símavakt á milli kl. 9 og 22 þar sem meðal annars verða veittar upplýsingar um skráningu á kjörskrá. Símanúmerið er 515-5300. Einnig má hafa samband með tölvupósti á kosningar@skra.is.
Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV á Sauðárkróki.