Fara í efni

Skipan í kjördeildir

01.06.2024

Við forsetakosningar sem fram fara laugardaginn 1. júní n.k. er skipan í kjördeildir sem hér segir:

Kjördeild í Bóknámshúsi FNV,
þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs-, Rípur- og Skefilsstaðahreppa – kjörfundur hefst kl. 09:00

Kjördeild í Höfðaborg Hofsósi
þar kjósa íbúar fyrrum Hofs-, Fljóta-, Hóla- og Viðvíkurhreppa – kjörfundur hefst kl. 10:00

Kjördeild í Varmahlíðarskóla,
þar kjósa íbúar fyrrum Staðar–, Seylu-, Akra- og Lýtingstaðahreppa – kjörfundur hefst kl. 10:00

Kjörfundi slíta 8 klst. eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði.

Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.

Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00 en þeir kjósendur sem hafa gefið sig fram fyrir þann tíma eiga þó rétt á að greiða atkvæði.

Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanni Norðurlands vestra á Sauðárkróki frá kl. 09:00 til kl. 15:00 virka daga fram að kjördegi og kl. 16:00-18:00 á kjördag þann 1. júní 2024.

Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV á Sauðárkróki.

Yfirkjörstjórn