Fara í efni

Skíðasvæðið í Tindastóli

11.11.2014

Um næstu helgi stendur til að opna skíðasvæðið í Tindastóli. Fyrsti opnunardagur verður á föstudaginn frá kl. 14-19 og svo verður opið á laugardag og sunnudag frá kl. 11-16. Öll verð eru óbreytt frá í fyrra, árskort kosta 22.000.- fyrir fullorðna og 13.000.- fyrir börn. Veittur er fjölskylduafsláttur af árskortum 10% af 2 kortum og 20% ef kortin eru 3 eða fleiri. Dagskort kosta 1.300.- fyrir börn 7-17 ára og 2.600.- fyrir fullorðna. Opnunartímar eru þó háðir veðri og aðstæðum í fjallinu. Fólki er bent á að kynna sér heimasíðu skíðasvæðisins.