Fara í efni

Skert opnun ráðhúss fram að páskum

03.04.2023
Ráðhús sveitarfélagsins á Sauðárkróki

Vegna framkvæmda í afgreiðslu ráðhússins verður ekki unnt að taka á móti fólki næstu þrjá daga. Verður afgreiðsla ráðhússins því lokuð fyrir heimsóknir mánudaginn 3. apríl, þriðjudaginn 4. apríl og miðvikudaginn 5. apríl. Hægt er að hafa samband við afgreiðslu í gegnum síma 455 6000 og í gegnum netfangið skagafjordur@skagafjordur.is. Afgreiðslan mun svo opna aftur fyrir heimsóknir þriðjudaginn 11. apríl eftir páskafrí.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.