Fara í efni

Skagfirskar leiguíbúðir hses. ráðast í byggingu 8 leiguíbúða á Sauðárkróki

23.03.2018
Fyrirhugað útlit húsanna sem rísa munu í Laugatúni

Í vikunni var undirritaður verksamningur og verkáætlun á milli Skagfirskra leiguíbúða hses. og BM Vallár ehf. vegna bygginga á tveimur fjögurra íbúða húsum úr forsteyptum einingum. Húsin sem eru á tveimur hæðum, munu rísa í Laugatúni 21-23 og 25-27 á Sauðárkróki, og er þeim ætlað að mæta brýnni þörf fyrir frekara leiguhúsnæði á svæðinu.

Í hvoru húsi verður ein þriggja herbergja íbúð sem er 85 fm, og þrjár fjögurra herbergja íbúðir sem hver um sig er 96 fm.

Áætlað er að framkvæmdir við húsin hefjist í sumar og stefnt er að verklokum á vormánuðum 2019.