Fara í efni

Skagfirðingar komust áfram í Útsvari

19.01.2015
Guðný, Guðrún og Vilhjálmur

Lið Skagafjarðar sigraði í Útsvari síðastliðinn föstudag þegar það hafði betur í viðureign sinni við lið Rangárþings ytra. Keppnin var jöfn og spennandi og munaði aðeins tveimur stigum þegar yfir lauk en þau Guðný, Guðrún og Vilhjálmur enduðu með 57 stig á móti 55 stigum andstæðinganna. Þetta var flott frammistaða og gaman að fylgjast með þeim í næstu keppni.