Fara í efni

Skagafjörður tekur þátt í verkefninu Viljandi villt

01.09.2026

Skagafjörður mun á komandi árum taka þátt í verkefninu Viljandi villt, en sífellt er að færast í aukana að sveitarfélög leyfi völdum flötum í þéttbýli að vaxa villt. Um er að ræða einföld og sýnileg leið til að skapa meira rými fyrir náttúruna, auka líffræðilega fjölbreytni og gera umhverfið líflegra. Þessi svæði þurfa ekki að vera merki um hirðuleysi, heldur eru þetta meðvituð græn svæði þar sem náttúran fær meira rými til að dafna.

Helsti ávinningurinn af þessu verkefni er aukin líffræðileg fjölbreytni líkt og hefur komið fram. Blómríkar grasflatir veita skordýrum, fuglum og öðrum smádýrum fæðu og skjól og geta myndað mikilvæga tengingu milli garða og opinna svæða. Þetta er sérstaklega mikilvægt þar sem hefðbundnar, stutt slegnar grasflatir hafa oft takmarkað gildi fyrir lífríkið. Viljandi villt svæði draga þá einnig úr kostnaði þar sem sláttur er færður niður í færri skipti eða sleppt yfir sumarið á hentugum svæðum.

Með því að leyfa hentugum svæðum að vaxa getur Skagafjörður sýnt í verki að snyrtilegt þéttbýli og ríkara lífríki fara vel saman. Á komandi árum stendur til að fjölga þessum svæðum þar sem gróðri er leyft að vaxa viljandi.