Skagafjörður mannauðshugsandi vinnustaður annað árið í röð
Gaman er að greina frá því að Skagafjörður hefur hlotið viðurkenningu fyrir að vera mannauðshugsandi vinnustaður árið 2026. Þetta er annað árið í röð sem sveitarfélagið hlýtur þessa útnefningu.
Viðurkenningin er veitt leiðandi íslenskum vinnustöðum sem uppfylla skilyrði HR Monitor. HR Monitor framkvæmir rauntíma mannauðsmælingar hjá fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi.
Skilyrðin til að hljóta verðlaunin fela m.a. í sér að senda þarf út mannauðsmælingar til alls starfsfólks að lágmarki ársfjórðungslega, eða fjórum til tólf sinnum á ári. Þá þurfa vinnustaðir að miðla niðurstöðum til starfsfólks og gera þeim grein fyrir árangri vinnustaðarins. Sveitarfélagið hefur nýtt mælingar HR Monitor til að fylgjast með líðan og upplifun starfsfólks af starfsumhverfinu og greina hvar tækifæri eru til umbóta. Niðurstöðurnar nýtast jafnframt stjórnendum sem mikilvægt verkfæri við þróun sinna sviða og deilda.
Starfsfólkið er ein mikilvægasta auðlind Skagafjarðar og því er lögð rík áhersla á að skapa starfsumhverfi þar sem fólki líður vel og fær að njóta sín í starfi. Með reglubundnum mannauðsmælingum og markvissri eftirfylgni er leitast við að sýna í verki að mannauðurinn skiptir máli.