Fara í efni

Sigrún Alda Sighvats – 40 ára starfsafmæli

28.05.2026

Þau merku tímamót áttu sér stað á þriðjudaginn síðasta þegar Sigrún Alda deildarstjóri launadeildar fagnaði 40 ára starfsafmæli hjá sveitarfélaginu. Sigrún hóf störf 26. maí árið 1986 og hefur síðan þá unnið samfleytt í fjóra áratugi í fullu stöðugildi, að undanskilinni einni viku árið 2008 þegar hún fór í veikindaleyfi. Tilviljun ein réði því að Sigrún hóf störf hjá Sauðárkrókskaupstað á sínum tíma, þá nýútskrifuð úr Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Í upphafi var hún ráðin inn til að sinna bókhaldsstörfum, en eftir ár í starfi var Sigrún beðin um að leysa af í launadeildinni og hefur ílengst í því hlutverki til dagsins í dag.

Sigrún man tímana tvenna og óhætt er að segja að hún hafi í starfi sínu upplifað miklar breytingar í sínu starfsumhverfi. Til að mynda var ekkert sem hét tölvupóstur þá, heldur var stuðst við bréfpóst og tæki á borð við ritvélar og faxtæki voru lengi vel helstu tæknibyltingarnar í hennar starfsumhverfi.

Þegar Sigrún lítur til baka kveðst hún sjá mikið á eftir góðum vinnufélögum og nefnir í því samhengi árgangana 1941, 1951 og svo auðvitað 1961. Vinnufélagarnir, bæði núverandi og fyrrverandi, eru að hennar mati það allra skemmtilegasta við starfið sitt. Aðspurð hvort það væri eitthvað eftirminnilegt í starfi nefndi hún hversu erfitt það hafi verið fyrir hana að flytja yfir götuna á sínum tíma í nýja ráðhúsið. Þeir sem hafa unnið með henni munu ekki kippa sér upp við þessa minningu, enda er Sigrún þekkt fyrir að vera vanaföst kona, rjómaelskandi, síkát, ákveðin og umfram allt hjartahlý og hjálpsöm. Hún vill þó taka það fram að hún sé nú loksins búin að taka þessa flutninga í sátt, nokkrum árum seinna.

Þegar spurt er að leikslokum segir Sigrún að við taki fullt af góðum árum með Jóni sínum. Hún er þó hvergi nærri hætt í störfum sínum hjá sveitarfélaginu. Hún setti sér nefnilega það persónulega markmið fyrir nokkrum árum að láta einungis af störfum þegar hún yrði með bæði hæsta starfsaldur og lífaldur. Til þess að það markmið raungerist þurfa, þegar þetta er skrifað, þrír starfsmenn í ráðhúsinu að láta af störfum þannig að hún fylgist spennt með framvindunni á komandi árum.