Sauðárkrókur - Athafnasvæði AT-403 - Deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi fyrir, Sauðárkrókur athafnasvæði AT-403, liggur frammi til kynningar frá 21. maí til og með 4. júlí 2025. Skipulagssvæðið er innan skilgreindra þéttbýlismarka Sauðárkróks í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035 og er innan athafnasvæðis þess nr. AT-403. Deiliskipulagssvæðið er 23,45 ha að stærð og skiptist í tvo meginhluta af Sauðárkróksbraut, þjóðvegi nr. 75. Annar hlutinn liggur norðvestan við þjóðveginn og sunnan við byggt atvinnusvæði sunnan við Strandveg. Svæðið vestan Sauðárkróksbrautar mun tengjast gatnakerfi Sauðárkróks um Borgargerði en svæðið austan Sauðárkróksbrautar um nýja safngötu.
Hægt er að skoða skipulagstillöguna í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 808/2024. Tillagan mun jafnframt liggja frammi til kynningar í ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21 á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin hér á heimasíðunni.
Hægt er að skila inn ábendingum í gegnum Skipulagsgáttina og skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu ráðhúss eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is.