Fara í efni

Sauðáin hættuleg vegna klaka

07.12.2023
Sauðá á Sauðárkróki

Mikill kuldi hefur verið síðustu daga og vikur og vegna þessa er nú mikil klakamyndun og ísing á ám og lækjum. Af gefnu tilefni biðlum við til foreldra og forráðamanna um að brýna fyrir börnum að leika sér ekki á ísnum á Sauðá, né í kringum ána. Nauðsynlegt er að ræða við börn um hættuna sem stafar af slíkum leik. Talsvert vatn er einnig farið að renna ofan á ísnum á köflum.