Fara í efni

Sandkistur á þéttbýlisstöðum í Skagafirði

09.12.2015

Nú er tíðarfar umhleypingasamt og mikil hálka á ýmsum stöðum. Sandkisturnar sem komið var fyrir í fyrravetur eru enn á sínum stað með saltblönduðum sandi sem öllum er velkomið að nota til að salta í kringum hús sín.

Kisturnar eru staðsettar á eftirfarandi stöðum;

Steinsstaðir: Við norðurvegg gamla bókasafnsins.

Varmahlíð: Við norðurvegg íþróttahússins.

Sauðárkrókur: Við suðurhlið þjónustumiðstöðvar / Eignasjóðs að Borgarflöt 27.

Hólar: Við aðalinngang grunnskólans.

Hofsós: Við austurhlið áhaldahússins við Norðurbraut