Fara í efni

Samúðarkveðjur frá Skagafirði

26.11.2026

Fyrir hönd íbúa Skagafjarðar sendir sveitarstjórn Skagafjarðar fjölskyldum og ástvinum þeirra sem létust í sjóslysinu í gær innilegustu samúðarkveðjur. Hugur okkar er hjá þeim sem syrgja og öllum þeim samfélögum sem slysið snertir. Þeim sem bjargað var sendum við hlýjar kveðjur og óskir um styrk og bata.

Sjómennska er samofin sögu og samfélagi okkar í Skagafirði og fjölmargar fjölskyldur hér þekkja þá tilfinningu að eiga ástvin úti á sjó. Þegar válegir atburðir sem þessir eiga sér stað er það vakning um afl náttúrunnar og hvað hún er óvægin. Við færum jafnframt öllum þeim sem komu að björgunaraðgerðum okkar dýpstu þakkir fyrir ómetanlegt starf, hugrekki og framgöngu við einstaklega erfiðar aðstæður.

Sveitarstjórn Skagafjarðar