Samráðs- og vinnufundur vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Gamla bæinn á Sauðárkróki
10.09.2026
Skagafjörður efnir til samráðs- og vinnufundar vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Gamla bæinn á Sauðárkróki.
Á fundinum verða kynnt:
• Markmið deiliskipulagsvinnunnar
• Helstu frumforsendur
• Sérstaða gamla bæjarins
• Rammahugmynd fyrir gamla bæinn – sett fram til umræðu, ekki sem fullmótuð tillaga.
Öll velkomin í Árskóla (matsalur), Skagfirðingabraut 22, Sauðárkróki, mánudaginn 28. september, kl. 16:30-18:00.
Léttar veitingar í boði.
Sveitarfélagið hvetur íbúa til þess að mæta, kynna sér málið og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.