Fara í efni

Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2022 - Óskað er eftir tilnefningum

30.03.2022
Stefán R. Gíslason, handhafi Samfélagsverðlauna Skagafjarðar 2021.

Óskað er eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2022.

Samfélagsverðlaun Skagafjarðar eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Sveitarfélaginu Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.

Samfélagsverðlaun Skagafjarðar voru veitt í fyrsta sinn árið 2016 og verða veitt í sjöunda sinn á setningu Sæluviku þann 24. apríl. 

Frestur til að senda inn tilnefningar er 10. apríl nk.

Tilnefningar má senda inn með því að fylla út rafrænt skjal en einnig er í boði að senda tilnefningar á netfangið heba@skagafjordur.is eða skila inn skriflega í afgreiðslu Ráðhússins á Sauðárkróki.