Fara í efni

Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2020 - Tilnefningar

09.09.2020
Geirmundur Valtýsson hlaut Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2019. Hér er hann ásamt eiginkonu sinni Mínervu Björnsdóttur.
Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar. Samfélagsverðlaunin eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Sveitarfélaginu Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel. Tilnefningar þurfa að berast fyrir föstudaginn 25. september nk.
 
Hægt er að senda inn tilnefningu eftir þremur leiðum:
  • Senda inn rafrænt hér
  • Senda inn tilnefningu á heba(hja)skagafjordur.is
  • Skila inn skriflegri tilnefningu í afgreiðslu ráðhússins