Fara í efni

Samfélagsverðlaun Skagafjarðar

12.04.2016
Sólarlag í Skagafirði

Á setningu Sæluviku Skagfirðinga 2016 verða veitt Samfélagsverðlaun Skagafjarðar í fyrsta sinn. Verðlaunin verða veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Sveitarfélaginu Skagafirði sem þykir standa sig afburðavel í að efla skagfirskt samfélag.

Nú óskum við eftir liðsinni íbúa sveitarfélagsins og hvetjum þá til að senda inn tilnefningar fyrir fimmtudaginn 21. apríl næstkomandi. Þeim má skila á netfangið sigfus@skagafjordur.is eða í afgreiðslu ráðhússins á Sauðárkróki.

Sæluvikan stendur yfir 24. apríl - 1. maí