Fara í efni

Safnahúsið opnar eftir endurbætur

26.10.2015

Safnahús Skagfirðinga verður opnað næstkomandi föstudag 30. október, eftir miklar endurbætur og verður nýja lyftan tekin formlega í notkun. Húsið verður til sýnis milli kl 16 og 18 og eru allir velkomnir að koma og skoða þær miklu endurbætur sem gerðar hafa verið á húsinu.

Útlán á bókasafninu hefjast mánudaginn 2. nóvember og verður safnið opið alla virka daga frá 11-18 og skjalasafnið frá 9-12 og 13-16.