Fara í efni

Safnahúsið opnar aftur mánudaginn 4. maí

29.04.2020
Safnahúsið

Safnahúsið opnar aftur mánudaginn 4. maí. Afgreiðsla bókasafnsins verður opin frá kl. 11-18 alla virka daga og skjalasafnsins kl 9-12 og 13-16. Áfram verða varúðarráðstafanir, þær sömu og síðustu vikurnar fyrir lokun. Allir snertifletir verða sótthreinsaðir nokkrum sinnum á dag, s.s. lyftutakkar, hurðarhúnar, handrið og annað sem fólk snertir.
Því miður verður þjónustan skert enn um sinn:
-Bækur sem skilað er inn eru settar til hliðar og sótthreinsaðar og geymdar í 3 daga áður en þær eru lánaðar út aftur.
-Dagblöð og tímarit liggja ekki frammi.
-Leikföng og púðar hafa verið fjarlægð úr barnadeildinni.
-Engir viðburðir verða í húsinu.
-Kaffi verður ekki í boði.
-Starfsfólk biðlar til fólks að virða 2 metra fjarlægðarregluna.
-Fólk er einnig beðið um að stoppa ekki lengur á bókasafninu en það tekur að skila/velja/taka bækur.

Starfsfólk Safnahússins hlakkar til að hitta lánþegana sína og aðra gesti aftur.