Fara í efni

Sæluviku Skagfirðinga frestað

20.03.2020
Mynd: Feykir.is

Vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar og tilmæla Almannavarna Ríkisins hefur verið tekin sú ákvörðun að fresta Sæluviku Skagfirðinga sem fara átti fram vikuna 26. apríl – 3. maí 2020. Til skoðunar er að halda Sæluviku Skagfirðinga á haustmánuðum eða mögulega að færa til næsta árs. Verður ákvörðun tilkynnt síðar.


Sveitarfélagið Skagafjörður biðlar til íbúa að fara að öllu með gát og fylgja fyrirmælum almannavarna.

 
Við erum öll almannavarnir.