Fara í efni

Rotþróarlosun í Skagafirði 2022

28.07.2022

Sveitarfélagið mun standa fyrir losun rotþróa á næstkomandi vikum.

Svæðið sem losunin nær yfir er frá og með Hegranesi, Blönduhlíð og að Fljótum.

Losunin nær einnig til rotþróa í fyrrum Akrahreppi sem ekki hafa verið losaðar á síðastliðinum þremur árum.

Eigendur rotþróa eru vinsamlegast beðnir um að tryggja aðgengi losunarbíls að rotþróm og að þær séu auðfinnanlegar og opnanlegar.

Ef eigendur hafa athugasemdir fram að færa vinsamlegast komið þeim á framfæri á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 455 6000 eða á netfangið ipi@skagafjordur.is.